Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Sölva Helgasyni tókst líka að reikna barn í konu og þeir reikningar sem hv. þm. hefur hérna upp eru einskis virði. Það er auðvitað hægt að bera saman stóriðjuver sem sett er upp hér á Íslandi og t.d. stóriðjuver úti í heimi sem rekin eru fyrir kolum. Það eru bara engin stóriðjuver byggð lengur sem eru rekin fyrir kolum. Staðreyndin er einfaldlega sú, herra forseti, að mér er mætavel kunnur áhugi núverandi ríkisstjórnar á því að nýta innlenda vistvæna orkugjafa eins og hv. þm. kýs að kalla þá. Ég hef séð þennan áhuga birtast t.d. hér í þingskjali frá hæstv. iðnrh. sem hv. þm. hefði betur látið ónefndan í sambandi við umhverfisstefnu. Í því skjali er hæstv. ráðherra að lýsa þeirri skoðun sinni að hann telji að hér eigi að byggja stóriðjuver í hrönnum um allt land. Og ef maður leggur saman þá losun á koltvíildi sem kemur frá þeim stóriðjuverum sem þar eru nefnd þá er líklegt að hún fari yfir 3 milljónir tonna. Það er sömuleiðis mat hæstv. umhvrh. að árið 2000 verði öll losun Íslendinga á koltvíildi um 3 milljónir tonna. Með öðrum orðum er áhuga hæstv. iðnrh. á að nýta innlenda, vistvæna orkugjafa þannig háttað að líklegt er að hann leiði til þess, ef viljinn nær fram að ganga, að losun Íslendinga á þessum skaðlegu lofttegundum tvöfaldist.
Herra forseti. Hv. þm. þarf ekkert að hlaupa í bátana fyrir ráðherrana. Þeir eru færir um það sjálfir. Ég er alveg viss um og veit að hv. þm. hefur góðan vilja í þessum efnum og hann hefur haft hér frumkvæði að því að leggja fram mál sem horfa mjög til bóta í þessum efnum, þó ég sé kannski enn í hópi þeirra efasemdarmanna sem telja að áhersla hans t.d. á vetni muni ekki ganga nógu fljótt í fyllingu, eins og hv. þm. vildi og væri auðvitað æskilegt. Ég vildi óska að ég hefði rangt fyrir mér í þeim efnum en reynslan sýnir þá bara hversu miðar.