Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998

Þriðjudaginn 09. desember 1997, kl. 14:12:37 (1881)

1997-12-09 14:12:37# 122. lþ. 38.6 fundur 323. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998# (breyting ýmissa laga) frv., GE (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur

[14:12]

Gísli S. Einarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég óska eftir því að hæstv. forsrh. geri grein fyrir því hvaða hluta af verkefninu ríkisstjórnin vill láta halda áfram með og hvaða hluta verkefnisins á að leggja til hliðar. Það hefur verið þannig að þeir sem að þessu starfa hafa ákveðið að stöðva fjárveitingar vegna þess að ekki er hægt að halda áfram með þau verkefni sem eru þó í gangi. Ég óska eftir því að hæstv. forsrh. geri grein fyrir því hvaða verk það eru sem hæstv. ríkisstjórn vill að sé haldið áfram með.