Fjárlög 1998

Föstudaginn 12. desember 1997, kl. 14:02:53 (2011)

1997-12-12 14:02:53# 122. lþ. 41.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv., Frsm. meiri hluta JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 41. fundur

[14:02]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson) (andsvar):

Herra forseti. Það var aðeins eitt atriði í ræðu hv. ræðumanns sem ég vildi gera að umræðuefni í andsvari. Það var framlag til Áforms. Við höfum haft það mál til athugunar í fjárln. um sinn og við höfum ákveðið, þó að ég hafi ekki getið þess í framsöguræðu minni, að kanna milli 2. og 3. umr. hvort möguleikar eru til þess að verða við þessu og því höfum við ekki lokið afgreiðslu málsins. Ég vildi að það kæmi fram í framhaldi af ræðu þeirri sem hv. þm. flutti hér áðan.