Gísli S. Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Ég vil þakka hv. formanni fjárln. fyrir þetta svar. Ég eygi þá enn von um að þarna sé möguleiki til að víkja af þeim vegi sem ríkisstjórnin er á og laga þar til, gera götu greiða fyrir þetta verkefni svo að því fái að ljúka.
Ég get sagt það hér að stefnt er að því að þetta verkefni verði lagt niður eftir fimm ár því að þá verði búið að ná þeim markmiðum sem þáltill. gerði ráð fyrir. Og ef svo er, ef ég fer þar með rétt mál, þá er virkilega vel að staðið og betur en með mjög mörg önnur mál sem til umræðu hafa verið.
Ég ætla ekki að gera annað en þakka formanni fjárln. fyrir að gefa þetta svar. Ég gaf ekki tilefni til mikilla orðaskipta í minni ræðu. Ég er vitandi vits að berjast fyrir ákveðnu máli og tel að það eigi sérstaklega rétt á sér með þeim tillögum sem ég geri ásamt mínum félögum og öll --- ég tek það fram --- öll stjórnarandstaðan stendur að brtt. minni hlutans við þessa umræðu.