Sturla Böðvarsson (andsvar):
Herra forseti. Vegna ræðu hv. þm. Gísla S. Einarssonar þar sem hann fjallaði um framlög til framleiðslu á vistrænum og lífrænum afurðum, þá vil ég vekja athygli hv. þm. á því þegar hann skorar á ríkisstjórnina að bregðast við, að þetta mál er fyrir Alþingi. Það er í meðförum þingsins og það þýðir ekki um þessar mundir þess vegna að kalla á hjálp ríkisstjórnarinnar því að hún fer ekki með málið eins og er.
Hins vegar hefur hv. formaður fjárln. lýst því í hvaða stöðu málið er og það er í fullkomlega eðlilegri stöðu. Þetta mál er nefnilega mjög sérstaklega staðsett í fjárlögum vegna þess að það er sem sérstakur liður á fjárlögum og síðan er sérstakt ákvæði, skerðingarákvæði, sem fjallar um málið, bæði í 6. gr. fjárlaga og svo einnig í ráðstöfunum um ríkisfjármál, bandormi, þannig að það er fullkomlega eðlilegt að málið sé ekki tekið til endanlegrar afgreiðslu fyrr en við 3. umr. vegna þess að eftir er að fjalla um 6. gr. fjárlaganna í fjárln. til enda og þess vegna er þetta í fullkomlega eðlilegri stöðu. Ég sé því ekki ástæðu til þess að hv. þm. sem á sæti í fjárln. setji út það spil sem hér er sett út.