Margrét Frímannsdóttir (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þm. að vissulega mættu þingmenn almennt vera virkari í umræðu um heilbrigðismál en í sjálfu sér breyttist ekkert við þetta svar vegna þess að hv. þm. segir að 30 ára gömul viðhorf ráði ferðinni í heilbrigðismálum, 30 ára gömul eða jafnvel eldri --- næstum því jafnaldra hæstv. heilbrrh. --- að viðhorfin séu það gömul sem ráði ferðinni í dag. Þetta er mjög harður dómur og ég endurtek að þetta er mjög harður dómur yfir verkum ríkisstjórnarinnar. Hann er harður en þetta er dómur sem við í stjórnarandstöðunni getum tekið undir og höfum reyndar oft verið með mjög svipaðan málflutning.