Sturla Böðvarsson:
Herra forseti. Ég má til með að nefna aftur þennan samanburð vegna þess að hv. 8. þm. Reykv. heldur honum áfram. Ég leyfi mér að efast um að við getum ekki treyst tölum frá Ríkisendurskoðun. Ég vil einnig nefna að þær tölur sem við höfum fengið frá Ríkisendurskoðun sýna að raunútgjöldin til þessara sjúkrastofnana hafa verið að hækka. Hins vegar hefur náðst árangur og lyfjakostnaður hefur lækkað, en raunútgjöldin hafa hækkað. Ég held að það sé ekki mjög skynsamleg umræða að vera að rífast um hvaða vísitölu við notum. Þjóðhagsstofnun notar eina leið til uppfærslu og Ríkisendurskoðun aðra leið til uppfærslu. Þetta er náttúrlega ómögulegt.
En vegna þess sem hv. þm. sagði um það að þetta séu reikningskúnstir og það sé verið að færa inn þvottahús o.s.frv., þá ætla ég ekki að mótmæla því vegna þess að ég get ekki fullyrt neitt um það. En staðreyndin er hins vegar sú að gert var samkomulag milli þessara aðila. Ef ekki er staðið við það samkomulag þá þarf auðvitað að taka það upp. Það sem við gerum ráð fyrir að verði gert með tillögum meiri hluta fjárln. er að þetta samkomulag verði tekið upp og gert nýtt samkomulag sem nýti sér þær viðbótarfjárveitingar sem við erum að fjalla um hér og nú í þessari umræðu.