Veiting ríkisborgararéttar

Laugardaginn 13. desember 1997, kl. 10:33:16 (2103)

1997-12-13 10:33:16# 122. lþ. 42.2 fundur 292. mál: #A veiting ríkisborgararéttar# (fyrra stjfrv.) frv. 125/1997, Frsm. SP
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[10:33]

Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti allsherjarnefndar á þingskjali 479, um frumvarp til laga um veitingu ríkisborgararéttar, og breytingartillögum á þingskjali 480.

Nefndin hefur fjallað um málið og var umfjöllun hennar með svipuðu sniði og undanfarin ár. Formaður og einn nefndarmanna fóru yfir þær 135 umsóknir um ríkisborgararétt sem nefndinni bárust í því skyni að kanna hvort þær uppfylltu þau skilyrði sem allsherjarnefnd hefur sett fyrir veitingu ríkisborgararéttar, sbr. þskj. 723 á 118. löggjafarþingi. Síðan fjallaði öll nefndin um umsóknirnar á tveimur fundum.

Við afgreiðslu á frumvarpinu hefur nefndin haft að leiðarljósi fyrrgreindar reglur um veitingu ríkisborgararéttar. Umsóknir sem ekki hljóta afgreiðslu nú bíða þar til síðara frumvarpið um ríkisborgararétt verður afgreitt á vorþingi, en þá koma óafgreiddar umsóknir aftur til skoðunar.

Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með þeim breytingum sem gerð er tillaga um á sérstöku þingskjali. Þar er lagt til að 83 einstaklingar fái íslenskan ríkisborgararétt.