Frsm. allshn. (Sólveig Pétursdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti og breytingartillögum allsherjarnefndar á þingskjali 473, um frumvarp til laga um breyting á lögum um fangelsi og fangavist, nr. 48/1988.
Nefndin hefur fjallað um málið og fékk til viðræðna við sig ýmsa gesti. Þá bárust nefndinni nokkur erindi um málið.
Í frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið sjái um og beri ábyrgð á heilbrigðisþjónustu við fanga í fangelsum. Í öðru lagi eru lagðar til breytingar sem nauðsynlegt er að gera í kjölfar þess að gæsluvarðhaldsfangelsið við Síðumúla var lagt niður og í framhaldi af því hafin vistun gæsluvarðhaldsfanga í afplánunarfangelsum. Loks er lagt til að ákvæði laga um samfélagsþjónustu verði felld inn í lögin um fangelsi og fangavist auk þess sem nokkrar efnisbreytingar eru lagðar til á ákvæðum um samfélagsþjónustu. Er m.a. lagt til að heimilt verði að fullnusta allt að sex mánaða óskilorðsbundna refsivist með ólaunaðri samfélagsþjónustu en nú er hámarkið þriggja mánaða refsivist. Þá er lagt til að Fangelsismálastofnun taki ákvörðun um samfélagsþjónustu í stað samfélagsþjónustunefndar, að skilorðsrof verði meðhöndlað á svipaðan hátt og agaviðurlög í fangelsum og að ákvæði verði sett í lögin um veitingu reynslulausnar ef hluti refsivistarinnar hefur verið fullnustaður með samfélagsþjónustu.
Í máli þeirra sem komu á fund nefndarinnar kom fram að fullnusta refsivistar með samfélagsþjónustu hefur reynst vel. Nefndin er því sammála um að rétt sé að festa ákvæði um samfélagsþjónustu varanlega í lög en lögum um samfélagsþjónustu var í upphafi markaður takmarkaður gildistími og falla þau sjálfkrafa úr gildi um næstu áramót.
Í erindum sem nefndinni bárust um málið er bent á nokkur atriði sem talin er þörf á að breyta í löggjöf um fangelsi og fékk nefndin þær upplýsingar frá dómsmálaráðuneytinu að heildarendurskoðun á lögum um fanga og fangavist stæði fyrir dyrum.
Í nefndinni var sérstaklega rætt um 6. gr. frumvarpsins þar sem lögð er til breyting á 51. gr. almannatryggingalaganna þannig að skýrt sé kveðið á um að fangar séu sjúkratryggðir samkvæmt almennum reglum um sjúkratryggingar. Nefndin telur að ákvæðið sé nauðsynlegt til að hnykkja á því að sjúkratryggingar almannatrygginga skuli standa straum af sjúkrakostnaði, en ágreiningur hefur verið um það á undanförnum árum hverjum beri að greiða sjúkrakostnað fanga.
Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með tveimur breytingum. Annars vegar er lagt til að f-liður 4. gr. falli brott, en hann er talinn óþarfur. Í ákvæðinu er kveðið á um það að ákvarðanir Fangelsismálastofnunar séu kæranlegar til dómsmálaráðherra. Þar sem að allar ákvarðanir Fangelsismálastofnunar sæta kæru til dómsmálaráðherra þykir ekki þörf á að taka slíkt sérstaklega fram. Hins vegar er lögð til smávægileg orðalagsbreyting við 2. mgr. 6. gr.
Undir álitið skrifa Sólveig Pétursdóttir, Valgerður Sverrisdóttir, Árni R. Árnason, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Kristjánsson, Guðný Guðbjörnsdóttir, Kristján Pálsson, Guðrún Helgadóttir og Hjálmar Jónsson.