Forseti (Ólafur G. Einarsson):
Forseti hefur heyrt þessa athugasemd og harmar það að hafa ekki gert þingflokksmönnum nægilega glögga grein fyrir þessu áður en atkvæðagreiðsluskjalinu var dreift til þingmanna í morgun en forseti vonar að atkvæðagreiðsluskjalið sé nægilega skýrt. En ef eitthvað kemur upp á sem þarfnast skýringar er sjálfsagt að taka það til athugunar meðan á atkvæðagreiðslunni stendur.