Fjárlög 1998

Laugardaginn 13. desember 1997, kl. 14:49:47 (2143)

1997-12-13 14:49:47# 122. lþ. 42.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv. 150/1997, SJóh (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[14:49]

Sigríður Jóhannesdóttir:

Hæstv. forseti. Í vinnu fjárln. kom fram að fjárhagsvandræði landlæknisembættisins eru umtalsverð. Þrátt fyrir beiðni þar að lútandi var ekki talið unnt að verða við því að hækka framlög til landlæknisembættisins. Ég segi já við tillögunni.