Fjárlög 1998

Laugardaginn 13. desember 1997, kl. 14:57:41 (2149)

1997-12-13 14:57:41# 122. lþ. 42.1 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv. 150/1997, KH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[14:57]

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Eins og margsinnis hefur komið fram er vandi sjúkrahúsanna á höfuðborgarsvæðinu slíkur að sú upphæð sem á að setja í sérstakan pott, 300 millj. kr., dugir engan veginn til þess að rétta stöðu þeirra. Þess vegna segi ég að sjálfsögðu já.