Sighvatur Björgvinsson:
Virðulegi forseti. Það er af því að ég veit að hæstv. forseta er annt um hvernig menn afgreiða tillögur, þá vildi ég áður en þessi tillaga er afgreidd benda honum á að liðurinn hljóðar svo:
,,Heilbrigðismál, ýmis starfsemi. Við 1.58 Vistun áfengis- og vímuefna sjúklinga.``
Það mætti halda að hérna væri verið að gera ráð fyrir vistun áfengis og vímuefna sem sjúklingar eiga en ekki vistun áfengis- og vímuefnasjúklinga. Ég vildi biðja virðulegan forseta að leiðrétta þetta því að þetta er svona heldur ankannalegt orðalag.
(Forseti (ÓE): Tillagan gengur út á að breyta þessu, ef hv. þm. hefur yfirsést það. ,,Liðurinn orðast svo: 1.58 Krýsuvíkurskóli.`` Það er verið að leiðrétta þetta með tillögunni.)