Jóhanna Sigurðardóttir (andsvar):
Herra forseti. Ég held að það sé mjög skynsamlegt hjá hæstv. ráðherra að hún ætli að hugleiða hvort ekki sé rétt að stjórnarandstaðan eigi aðild að heildarendurskoðun á fæðingarorlofslöggjöfinni. Mér skilst að sú nefnd sem hæstv. ráðherra var með að störfum til að endurskoða fæðingarorlofslöggjöfina hafi ekki komist að sameiginlegri niðurstöðu. Ég veit ekki til þess að stjórnarandstaðan hafi átt sæti í þeirri nefnd. Ég held að það væri tilraunarinnar virði hjá hæstv. ráðherra að reyna að ná breiðri pólitískri samstöðu um framtíðarfyrirkomulag fæðingarorlofs með því að tryggja aðild allra stjórnmálaflokka að þeirri heildarendurskoðun. Ég vona að hæstv. ráðherra fari að setja af stað aðra tilraun til slíkrar endurskoðunar og hvet hæstv. ráðherra til að gera þá tilraun að stjórnarandstaðan komi að þessu borði. Stjórnarandstaðan hefur margt skynsamlegt fram að færa í því efni og mjög brýnt að um mál eins og fæðingarorlof og framtíðarfyrirkomulag ríki breið pólitísk samstaða á hv. þingi.