Fæðingarorlof

Laugardaginn 13. desember 1997, kl. 17:40:10 (2207)

1997-12-13 17:40:10# 122. lþ. 42.13 fundur 343. mál: #A fæðingarorlof# (feður) frv. 147/1997, MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 42. fundur

[17:40]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Eins og fram kom hjá hæstv. ráðherra, höfum við ekki tekið þetta frv. til umræðu enn þá. En mun það fela það í sér að þeir sem hafa verið án réttar til fæðingarorlofs á undanförnum tveimur til þremur árum muni njóta þess? Þau tilvik hafa komið upp og leitað hefur verið til ráðuneytis eða til Tryggingastofnunar varðandi úrbætur. Mun þetta verða afturvirkt þannig að þau njóti réttar síns þó seint sé.