Fjárlög 1998

Mánudaginn 15. desember 1997, kl. 15:23:24 (2235)

1997-12-15 15:23:24# 122. lþ. 43.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv. 150/1997, Frsm. meiri hluta JónK
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur

[15:23]

Frsm. meiri hluta fjárln. (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Þó frv. til fjárlaga fyrir árið 1998 sé tekið á dagskrá, samkvæmt ákvæðum þingskapa, þá hefur fjárln. ekki lokið athugun sinni á frv. Því legg ég til, herra forseti, að ég fái að fresta ræðu minni, og jafnframt að umræðunni verði frestað til þess tíma sem forseti telur hagkvæman fyrir frekari umræðu um málið.