Rannveig Guðmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Við fyrirspurn minni áðan orðaði hæstv. ráðherra svar sitt svo: Ég fer ekki ótilneyddur í slag.
Við þekkjum það. Hann hefur komið með frv. um vinnumarkaðsaðgerðir, frv. um atvinnuleysistryggingar og í bæði skiptin verið að fara í slag við verkafólk og verkalýðshreyfingu. Við komum með mjög miklar athugasemdir við frv. um atvinnuleysistryggingar og gátum þar afstýrt ýmsu þó að það hafi ekki tekist með vinnumarkaðslöggjöfina. Hann segir hér, virðulegi forseti, sá hæstv. ráðherra að auðvitað eigi að koma fullar bætur fyrir fullt starf. Samt sem áður hefur hann sett reglugerð þar sem það er ekki svo og er undrandi yfir.
Það er ekki hægt annað en minna á að þegar frv. um atvinnuleysistryggingar kom fram var það yfirfullt af ákvæðum sem öll snerust um skerðingar og öll gáfu í skyn það viðhorf að fólk væri að svindla til sín bætur.