Markaðshlutdeild fyrirtækja

Fimmtudaginn 18. desember 1997, kl. 10:16:38 (2582)

1997-12-18 10:16:38# 122. lþ. 47.2 fundur 216. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (sjóflutningar) fsp. (til munnl.) frá samgrh., Fyrirspyrjandi TIO
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur

[10:16]

Fyrirspyrjandi (Tómas Ingi Olrich):

Herra forseti. Með sama formála og hafður var að fyrri fyrirspurn vil ég spyrja hæstv. samgrh.:

1. Hefur ráðherra upplýsingar um markaðshlutdeild tveggja stærstu fyrirtækja landsins í sjóflutningum?

2. Telur ráðherra ástæðu til, með tilliti til markaðshlutdeildar þessara fyrirtækja, að setja lög sem takmarka umsvif og starfsemi þeirra umfram það sem samkeppnislög segja til um?