Markaðshlutdeild fyrirtækja

Fimmtudaginn 18. desember 1997, kl. 10:25:05 (2586)

1997-12-18 10:25:05# 122. lþ. 47.2 fundur 216. mál: #A markaðshlutdeild fyrirtækja# (sjóflutningar) fsp. (til munnl.) frá samgrh., samgrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur

[10:25]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Vegna athyglisverðra athugasemda hv. þm. Alþfl. tel ég nauðsynlegt að fram komi að ég lít svo á þegar spurt er hvort ráðherra hafi upplýsingar um markaðshlutdeild tveggja stærstu fyrirtækja landsins í sjóflutningum að þá ætlist fyrirspyrjandi til að reynt sé að gera efnislega grein fyrir samkeppnisumhverfi því sem hér er í sjóflutningum. Ég svaraði því eftir bestu getu og var ekki með útúrsnúninga í því sambandi.

Annars veit ég ekki, herra forseti, hvort það er þinglegt að segja, en fyrir skömmu talaði einn af þingmönnum Alþfl. um að vel færi á að Marteinn Mosdal svaraði fyrir mína hönd í þessum ræðustól. Áðan heyrðist mér Alþfl. þegar hafa séð fyrir því að hann kæmi hér í ræðustólinn og svaraði fyrir mig, Marteinn Mosdal hv. þm.