Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):
Herra forseti. Ég held ég megi fullyrða að þessu máli verði dreift í dag. Það er komið úr prentun. Ég held ég megi fullyrða að því verði dreift í dag. En hvort tími náist til að mæla fyrir því skal ég ekki segja um. En það stendur ekki á forsrh. að mæla fyrir frv. En hvort menn telja praktískt að gera það skal ég ekki segja um. Ég býst við að menn muni kannski vilja töluverðar umræður um málið ef mælt væri fyrir því. En ef það gæti orðið samkomulag um að mæla fyrir málinu og litlar umræður teldi ég það æskilegt.