Fæðingarorlof

Fimmtudaginn 18. desember 1997, kl. 12:12:46 (2616)

1997-12-18 12:12:46# 122. lþ. 48.5 fundur 343. mál: #A fæðingarorlof# (feður) frv. 147/1997, Frsm. ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur

[12:12]

Frsm. heilbr.- og trn. (Össur Skarphéðinsson) (andsvar):

Herra forseti. Að því er varðar rétt bankamanna er rétt að fram komi að þetta er ekki einungis skilningur formanns heilbr.- og trn. þingsins heldur líka skilningur heilbrrn. Hvað það varðar hvort ég muni beita sannfæringarkrafti mínum og fortöluhæfileikum til að fá hæstv. fjmrh. til að gefa út yfirlýsingu fyrir 3. umr. fjárlaga um að hann breyti reglum sínum til samræmis við þau ákvæði sem við erum að fjalla um, þá get ég gert það. Hins vegar þekki ég hæstv. fjmrh. og ég ímynda mér að jafnvel orð tiltölulega þungvægs formanns heilbrn. muni ekki endilega nægja til að toga slíka yfirlýsingu út úr honum, en ég skal ekki láta mitt eftir liggja.