Frsm. heilbr.- og trn. (Össur Skarphéðinsson) (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég verð að taka undir með forseta að því leyti til að ég er ekki að gera athugasemdir við fundarstjórn hans heldur kem ég hér núna einungis til að svara því sem hv. þm. sagði. Hún hélt því fram að mér hefði verið skipað að afgreiða tiltekið mál sem nokkrir þingmenn fluttu, (Gripið fram í.) en það er auðvitað víðs fjarri öllu sanni. Það var engum skipunum komið til mín, allra síst frá hæstv. ráðherra. Þetta mál var komið til nefndarinnar talsvert áður en fréttist af því máli sem hæstv. ráðherra hugðist flytja og afgreiðslu þess var nánast lokið að öllu leyti nema tæknilega. Það átti eftir að ljúka samþykkt þess þegar frv. hæstv. heilbrrh. var dreift.
Þá komum við að þessari lykilspurningu, herra forseti, sem hv. þm. Guðrún Helgadóttir ætti að velta fyrir sér. Er það boðlegt gagnvart þingheimi að ef einhverjir tilteknir þingmenn hafa lagt fram mál í þeirri góðu trú að þeir séu að vinna þarfaverk og síðan kemur frv., e.t.v. samhljóða, löngu síðar frá einhverjum tilteknum hæstv. ráðherra, eiga þeir þá að kippa því til baka? Mér finnst það alveg fráleitt og fyrir neðan sóma þingsins að hafa slík vinnubrögð uppi.
(GHelg: Forseti á að fara fram á að hæstv. ráðherra sé viðstaddur. Ég óska einnig eftir að hæstv. sjútvrh. verði viðstaddur þessa umræðu.)