Almannatryggingar

Fimmtudaginn 18. desember 1997, kl. 14:38:09 (2662)

1997-12-18 14:38:09# 122. lþ. 48.6 fundur 43. mál: #A almannatryggingar# (slysatrygging sjómanna) frv. 148/1997, Frsm. ÖS
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur

[14:38]

Frsm. heilbr.- og trn. (Össur Skarphéðinsson):

Herra forseti. Ég flyt hér álit heilbr.- og trn. um frv. til laga um breyting á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar, með síðari breytingum.

Nefndin fékk til fundar við sig þegar hún fjallaði um málið fulltrúa frá heilbr.- og trmrn., Guðríði Þorsteinsdóttur, frá Tryggingastofnun komu Una B. Ómarsdóttir og Kristján Guðjónsson til máls við nefndina, úr stjórn Norræna flutningamannasambandsins kom Borgþór Kjærnested og jafnframt kom Jónas Garðarsson frá Sjómannafélagi Reykjavíkur.

Nefndinni bárust jafnframt umsagnir um þetta mál frá Tryggingastofnun ríkisins, Verslunarráði Íslands, Vinnuveitendasambandi Íslands, Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Tryggingastofnun ríkisins, Vinnumálasambandinu og Sjómannasambandi Íslands.

Í frv. er lögð til sú breyting á lögum um almannatryggingar að launþegar sem þiggja laun samkvæmt íslenskum kjarasamningum og sem starfa um borð í erlendum kaupskipum, sem hins vegar eru gerð út af íslenskum aðilum, njóti sama réttar og launþegar sem starfa á íslenskum kaupskipum sem eru skráð hér á landi.

Nefndin var sammála því markmiði frv. og telur brýnt að allir skipverjar sem vinna hjá íslenskum skipafélögum og þiggja laun samkvæmt íslenskum kjarasamningum séu slysatryggðir samkvæmt lögum um almannatryggingar fullkomlega óháð því hvort þeir sigla á skipum í eigu skipafélagsins skráðum hér á landi eða hvort þeir starfa um borð í skipum sem hið íslenska skipafélag hefur tekið á leigu af erlendum aðilum. Fari svo, sem allt bendir til, að frv. verði að lögum frá hinu háa Alþingi mun það jafna rétt sjómanna sem starfa hjá íslenskum kaupskipaútgerðum, enda greiði þeir allir skatta og skyldur til íslenska ríkisins líkt og aðrir launþegar sem starfa hér á landi. Einnig greiða kaupskipaútgerðirnar launatengd gjöld af öllum starfsmönnum sínum hér á landi, þar með talið tryggingagjald. Jafnframt er með frv. lögð til samsvarandi breyting á rétti þeirra sem starfa um borð í loftförum í rekstri íslenskra aðila.

Frv. tekur hins vegar hvorki til þeirra einstaklinga sem ráða sig hjá skipafélögum í gegnum erlendar áhafnaleigur, enda starfi þeir þá í raun hjá erlendu áhafnaleigunni sem sjái um að greiða þeim laun, né heldur til einstaklinga sem starfa á erlendum skipum hjá erlendum skipafélögum.

Það kom fram í máli fulltrúa Tryggingastofnunar ríkisins að sú breyting sem frv. felur í sér sé einföld í framkvæmd og að með henni sé jafnframt afmarkað skýrt hverjir séu tryggðir og hverjir ekki. Jafnframt kom fram hjá þeim að samkvæmt efni frv. verði slysatryggðir þeir launþegar sem greiða skatta hérlendis en starfa um borð í skipum eða loftförum sem eru skráð erlendis. Þar með náist þau markmið sem stefnt var að með frv.

Varðandi þá brtt. sem lögð er fram af heilbr.- og trn. vill nefndin taka fram að með starfi um borð í íslensku loftfari eða loftfari sem rekið er af íslenskum aðilum er átt við hvers konar starf um borð í loftfari og hvers konar störf tengd loftfarinu á flugvelli eða í flughöfn. Með niðurlagi ákvæðisins, ,,enda séu laun greidd hér á landi`` er átt við að laun séu greidd af íslenskum útgerðaraðila, samkvæmt íslenskum kjarasamningum. Undir frv. falla einnig svokallaðir hleðslustjórar, sem stundum eru kallaðir á gullaldaríslensku ,,supercargo`` sem sigla með erlendum leiguskipum íslenskra útgerðaraðila. Slík leiga íslenskra útgerðarfyrirtækja telst rekstur í skilningi þessa frv.

Rétt er að taka fram, herra forseti, vegna umræðna sem urðu um málið við 1. umr. að nefndin telur að höfðu samráði við lögfræðinga Tryggingastofnunar ríkisins og nefndasviðs Alþingis, að efni frv. sé í samræmi við önnur íslensk lög. Þetta var dregið í efa við umræðurnar og þess vegna var farið sérstaklega yfir það. Það er niðurstaðan að í tengslum við lögfestingu frv. þurfi því ekki að breyta öðrum lögum.

Heilbr.- og trn. leggur til að þetta frv. verði samþykkt með þeirri breytingu sem er gerð grein fyrir á sérstöku þingskjali. Undir þetta skrifa ég, Össur Skarphéðinsson, formaður nefndarinnar, Siv Friðleifsdóttir, Guðmundur Hallvarðsson, Sólveig Pétursdóttir, Lára Margrét Ragnarsdóttir, Margrét Frímannsdóttir, Sigríður Anna Þórðardóttir, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Guðni Ágústsson.