Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 12:30:35 (2757)

1997-12-19 12:30:35# 122. lþ. 49.10 fundur 323. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998# (breyting ýmissa laga) frv. 130/1997, ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[12:30]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Enginn er að mótmæla því að lífeyrisgreiðslur skuli ekki lækka ef kjaraskerðingar verða. Mótmælin snúast um að þær skuli ekki bindast launavísitölu ef þær eiga að fylgja launaþróun í landinu. Um það snýst málið.

Herra forseti. Hv. þm. veður í villu og svíma í umræðunni.