Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 12:54:33 (2771)

1997-12-19 12:54:33# 122. lþ. 49.10 fundur 323. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1998# (breyting ýmissa laga) frv. 130/1997, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[12:54]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Atvinnuleysisbætur eru ekki festar í þessum bandormi eins og bætur almannatrygginga. Þar af leiðandi eru þær ekki geirnegldar með tvöfaldri tryggingu eins og bætur almannatrygginga en að sjálfsögðu taka þær --- og ég get endurtekið það sem ég sagði áðan --- þær hljóta að taka breytingum með hliðsjón af launaþróun í landinu.