Húsaleigubætur

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 13:52:58 (2790)

1997-12-19 13:52:58# 122. lþ. 49.1 fundur 290. mál: #A húsaleigubætur# (heildarlög) frv. 138/1997, KÁ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[13:52]

Kristín Ástgeirsdóttir:

Hæstv. forseti. Með þeirri brtt. sem verið er að greiða atkvæði um er einungis um það að ræða að bætt er inn í greinina heimild til þess að ef um veruleg vanskil er að ræða geti félagsmálanefndir látið greiðslu renna beint til leigusala. Það er sú breyting sem verið er að gera á þessari setningu en greinin í heild er ekki komin til atkvæða.