Stjórn fiskveiða

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 14:01:50 (2795)

1997-12-19 14:01:50# 122. lþ. 49.3 fundur 303. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðiheimildir krókabáta) frv. 144/1997, GHall (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[14:01]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Í frv. eru nokkur atriði sem eru til bóta fyrir smábáta. Hins vegar er verið að innleiða brask á heimildum til að selja kvóta. Með tilvísun til þess að ég og hv. þm. Guðjón Guðmundsson höfum lagt frv. til laga um afnám framsalsréttar hlýt ég að greiða atkvæði gegn þessu.