Guðjón Guðmundsson:
Herra forseti. Flestar þær breytingar sem lagðar eru til í þessu frv. eru til bóta fyrir smábátaútgerðina og sérstaklega þá báta sem eru á dagatakmörkunum. Hins vegar er hér lagt til að heimila framsal aflaheimilda krókaleyfiskvóta. Ég tel óheillaspor að innleiða kvótabraskið í smábátaútgerðina og greiði því ekki atkvæði.