Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 14:09:53 (2799)

1997-12-19 14:09:53# 122. lþ. 49.7 fundur 330. mál: #A lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins# (uppgjör á skuldbindingum, iðgjöld til B-deildar) frv. 142/1997, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[14:09]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Hér er lagt til að heimilt verði að reikna iðgjald ríkissjóðs og annarra launagreiðenda til B-deildar Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins. Þetta iðgjald er að sjálfsögðu til staðar, það þarf að reikna þetta, en það hefur ekki mátt gera hingað til og hér er lagt til að það verði heimilað. Ég greiði atkvæði með tillögunni.