Aukatekjur ríkissjóðs

Föstudaginn 19. desember 1997, kl. 14:27:40 (2805)

1997-12-19 14:27:40# 122. lþ. 49.9 fundur 304. mál: #A aukatekjur ríkissjóðs# (dómsmálagjöld o.fl.) frv. 143/1997, JóhS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 49. fundur

[14:27]

Jóhanna Sigurðardóttir:

Herra forseti. Í 4. og 5. gr. frv. er verið að auka skattlagningu á skuldugustu heimilin í landinu. Það er eftir öðru hjá þessari ríkisstjórn að skattleggja sérstaklega í góðærinu fjölskyldur sem eru að missa heimili sín á nauðungaruppboð. Ég segi nei við þessari sértæku skattlagningu á skuldugustu heimilin í landinu.