Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson) (andsvar):
Hæstv. forseti. Þetta er hárrétt hjá hv. þm. Kristni H. Gunnarssyni. Það er rétt að geta þess að í öllu undirbúningsstarfi að frv. var sérstaklega rætt um sjóði svo sem Lífeyrissjóðinn í Bolungarvík sem ég veit að hv. þm. er annt um. Eins var rætt um Lífeyrissjóð KEA og niðurstaðan sú að þessir sjóðir gætu starfað áfram og þyrfti ekki að loka þeim, enda væru réttindi sjóðfélaganna í engu skert og þeir ættu að geta verið í þeim áfram á þeim forsendum að þeirra réttindi væru að fullu tryggð.