Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Í umræðunni í morgun fékkst svar frá hv. formanni efh.- og viðskn. sem var í algerum véfréttastíl. Hann gat ekki svarað einfaldri spurningu með já eða nei. Hér er lagt til að tekinn sé af þessi lagalegi vafi sem felst í 2. gr. og hún skert þannig að sá skilningur sem víðast kom fram í viðræðum í hv. efh.- og viðskn. sé skýrður og hann komi greinilega fram. Ég greiði tillögunni atkvæði mitt.