Skyldutrygging lífeyrisréttinda

Laugardaginn 20. desember 1997, kl. 16:31:25 (2957)

1997-12-20 16:31:25# 122. lþ. 50.2 fundur 249. mál: #A skyldutrygging lífeyrisréttinda# (heildarlög) frv. 129/1997, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur

[16:31]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Ég get ekki samþykkt lögþvingaða hávaxtastefnu eins og hér er kveðið á um. Um er að ræða sams konar ákvæði og lögfest var í lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins fyrir réttu ári en einnig þá fannst mér ekki forsvaranlegt að setja þetta ákvæði í lög.