Tekjuskattur og eignarskattur

Laugardaginn 20. desember 1997, kl. 16:36:44 (2960)

1997-12-20 16:36:44# 122. lþ. 50.3 fundur 338. mál: #A tekjuskattur og eignarskattur# (sala og fyrning aflahlutdeildar) frv. 118/1997, SJS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur

[16:36]

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Við þingmenn Alþb. og óháðra getum tekið undir þá tillögu í nefndaráliti 2. minni hluta að þetta mál hefði haft gott af frekari skoðun og væntanlega ekki nein stór áhætta tekin með því að fresta afgreiðslu þess um einhverja mánuði. Við munum hins vegar styðja það efnisákvæði frv. verði frávísunartillaga felld, að aflahlutdeild verði ekki fyrnanleg og teljum það tvímælalaust rétta efnisreglu þannig að þó svo að málið hefði haft gott af frekari skoðun þá teljum við eftir sem áður ástæðu til að styðja þá þætti þess sem til bóta eru.