Fjárlög 1998

Laugardaginn 20. desember 1997, kl. 17:57:27 (2976)

1997-12-20 17:57:27# 122. lþ. 51.13 fundur 1. mál: #A fjárlög 1998# frv. 150/1997, SvG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 51. fundur

[17:57]

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég styð að sjálfsögðu þessa tillögu en vil láta það koma fram að ég harma að þetta er annað árið í röð þar sem ekki næst samkomulag um breytingar á þessum þætti í fjárlögum og fjárlagafrv. Ég tel að reynslan frá þessu ári og því síðasta kalli á að reynt verði að vinna öðruvísi að þessum málum á næsta þingi vegna þess að mikilvægt er að þessi þáttur í fjárlögunum haldist svipaður og samstaða hefur verið um um langt árabil.