Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Helsti ágalli þessa frv. er að niðurstöður þess geta ekki staðist. Það eru sprungur á tekjuhliðinni og útgjöldin eru augljóslega stórlega vanáætluð, sérstaklega að því er varðar rekstrarkostnað sjúkrahúsanna. Fyrir því liggur rækilegur rökstuðningur að rekstrarhalli allra sjúkrahúsanna í landinu stefni að óbreyttu í samtals 2,5 milljarða kr. í lok næsta árs. Meiri hlutinn hefur hlýtt á eða a.m.k. setið undir málflutningi stjórnarandstöðunnar í þessu efni en hann kýs að stinga sínu margklofna höfði í sandinn og vísa vandanum til framtíðar. Meiri hlutinn hefur hafnað ábyrgum tillögum minni hlutans um tekjuöflun til að mæta þessum óhjákvæmilegu útgjöldum. Hann hlýtur því að axla ábyrgðina af þessu ófremdarástandi og af frv. í heild.