Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson):
Virðulegi forseti. Þau fjárlög sem hér eru afgreidd í dag marka þáttaskil í ríkisfjármálum. Þau eru sett fram á grundvelli nýsettra fjáraukalaga og lýsa betur en áður raunverulegum umsvifum ríkisins. Gert er ráð fyrir að jafnvægi verði milli tekna og gjalda á rekstrargrunni en 3 milljarða kr. tekjuafgangi á greiðslugrunni. Þetta gerist þrátt fyrir að tekjuskattshlutfallið hafi frá síðustu fjárlögum lækkað um 3% eins og ákveðið var í tengslum við kjarasamninga til þess að efla kaupmátt heimilanna í landinu. Skatttekjur og útgjöld lækka sem hlutfall af landsframleiðslu. Samkvæmt frv. munu skuldir ríkisins sem hlutfall af vergri landsframleiðslu lækka. Lánsfjárþörfin verður á næsta ári 7--8 milljörðum minni en á þessu ári. Markmiðið er að greiða niður skuldir um tæplega 5 milljarða kr.
Frv. sem senn verður að lögum er því skýr staðfesting á þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að stuðla að áframhaldandi stöðugleika í efnahagsmálum. Ég styð frv.