1998-06-05 12:21:56# 122. lþ. 146.7 fundur 723. mál: #A skipun rannsóknarnefndar um málefni Landsbanka Íslands hf.# þál., KH (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 146. fundur, 122. lþ.

[12:21]

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Hæstv. viðskrh. telur sig ekki hafa neitt að óttast í sambandi við þau mál sem hér hafa verið til umræðu. Hann ætti að fagna vandaðri umfjöllun af því tagi sem stjórnarandstaðan hefur lagt til. Meiri hlutinn ræður, segja valdsmenn.

Hv. þm. Hjálmar Jónsson sagði í atkvæðaskýringu áðan að umræðan hefði verið fyrir neðan virðingu Alþingis. Ég tel að það væri virðingu Alþingis fremur samboðið að taka jákvætt á tillögu stjórnarandstöðunnar og segi að sjálfsögðu nei við þessari frávísunartillögu.