Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 466 – 332. mál.



Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á skipulags- og byggingarlögum, nr. 73/1997.

Frá umhverfisnefnd.



     1.      Við 3. gr. Í stað orðanna „Að afloknum“ í upphafi efnismálsgreinar komi: Þegar að loknum.
     2.      Á eftir 3. gr. frumvarpsins komi ný grein er orðist svo:
                   Eftirfarandi breytingar verða á 27. gr. laganna:
            a.      1. málsl. 1. mgr. orðast svo: Meiri háttar framkvæmdir, sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess, svo sem breyting lands með jarðvegi eða efnistöku, skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir og úrskurð um mat á umhverfisáhrifum þar sem það á við.
            b.      Við greinina bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
                        Ráðherra skal kveða nánar á um útgáfu framkvæmdaleyfa í reglugerð.
                      Landgræðslu- og skógræktaráætlanir skulu vera í samræmi við skipulagsáætlanir og mat á umhverfisáhrifum þar sem það á við.
     3.      Við 6. gr., b-lið:
            a.      Í stað orðanna „álagsprófunar á mannvirki“ komi: álagsprófunar mannvirkis.
            b.      Í stað orðsins „virknisprófun“ komi: virkniprófun.
     4.      Við 7. gr. Í stað orðsins „prófnefndar“ í b-lið komi: prófanefndar.
     5.      Við 12. gr. Við 1. efnismálsl. a-liðar bætist: í síðasta lagi 1. júlí 1998.