Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 521 – 1. mál.



Breytingartillaga



við frv. til fjárlaga fyrir árið 1998.

Frá Kristni H. Gunnarssyni og Ögmundi Jónassyni.



Skv. frv.
m.kr.

Breyting
m.kr.

Tillaga
m.kr.

Breytingar á sundurliðun 2:
    Við 08-206 Sjúkratryggingar
    a.     1.35 Tannlækningar          760,0     265,0     1.025,0
    b.      Greitt úr ríkissjóði          8.660,0     265,0     8.925,0

Greinargerð.


    Lögð er til hækkun til samræmis við áhrif á breytingum á 37. gr. almannatryggingalaga sem lagðar eru til í frumvarpi þriggja þingmanna Alþýðubandalagsins í þskj. 108. Þar er gert ráð fyrir hærra greiðsluhlutfalli hins opinbera í tannlækningakostnaði og auk þess er aldurs viðmiðun breytt gagnvart unglingum.