Ferill 343. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 605 – 343. mál.



Breytingartillögur



við frv. til l. um breytingu lagaákvæða um fæðingarorlof.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



     1.      1. efnismgr. 1. gr. orðist svo:
                  Auk réttar foreldra skv. 1. mgr. á faðir rétt á tveggja vikna fæðingarorlofi sem taka má hvenær sem er fyrstu átta vikurnar eftir fæðingu eða heimkomu barns, þó skal réttur föður vera fjórar vikur ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns eða alvarleg veikindi móður. Jafnframt á faðir rétt á fæðingarorlofi í tvær vikur til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt. Notfæri faðir sér ekki rétt samkvæmt þessari málsgrein fellur hann niður.
     2.      3. gr. falli brott.
     3.      1. efnismgr. 4. gr. orðist svo:
                  Faðir á rétt á tveggja vikna fæðingarorlofi sem taka má hvenær sem er fyrstu átta vikurnar eftir fæðingu eða heimkomu barns, þó skal réttur föður vera fjórar vikur ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns eða alvarleg veikindi móður. Jafnframt á faðir rétt á fæðingarorlofi í tvær vikur til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt. Notfæri faðir sér ekki rétt samkvæmt þessari málsgrein fellur hann niður.
     4.      Ákvæði til bráðabirgða orðist svo:
                  Ákvæði laga þessara skulu gilda um þá feður sem geta nýtt sér rétt samkvæmt lögun um við gildistöku þeirra.