Ferill 606. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1061 – 606. mál.


Nefndarálit



um frv. til l. um Kvótaþing.

Frá 1. minni hluta sjávarútvegsnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund frá utanríkisráðuneyti Jóhann Sigur jónsson, frá sjávarútvegsráðuneyti Árna Kolbeinsson og frá forsætisráðuneyti Ólaf Davíðs son. Hólmgeir Jónsson og Sævar Gunnarsson komu frá Sjómannasambandi Íslands og Benedikt Valsson, Guðjón Ármann Einarsson og Guðjón A. Kristjánsson frá Farmanna- og fiski mannasambandi Íslands. Frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna kom Kristján Ragnars son, Þórarinn V. Þórarinsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands og Arthur Bogason kom frá Landssambandi smábátaeigenda. Frá Verkamannasambandi Íslands komu Kristján Bragason, Snær Karlsson, Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður fiskvinnsludeildar Verkamannasambands Íslands, og Elínbjörg Magnúsdóttir, varaformaður fiskvinnsludeildar. Einar Svansson, Ágúst Elíasson og Arnar Sigmundsson komu frá Samtökum fiskvinnslustöðva. Óskar Þór Karlsson, Sæmundur Hinriksson, Kristján Guðmundsson, Sturla Erlendsson og Jón Steinn Elíasson komu frá Samtökum fiskvinnslu án útgerðar og Helgi Laxdal frá Vélstjórafélagi Íslands. Að lokum kom á fundinn Þórir Einarsson ríkissáttasemjari.
    Nefndinni bárust umsagnir frá Vinnslustöðinni hf., Lýsingu hf. og SP-fjármögnun.
    Fyrsti minni hluti vill taka fram að viðmælendur nefndarinnar létu í ljósi þungar áhyggjur yfir þeim alvarlegu afleiðingum sem ákvæði frumvarpsins valda með takmörkunum sínum á möguleika útgerða til að flytja aflamark milli skipa og hagræða þannig veiðiheimildum sínum. Hjálmar Árnason telur að veita ætti frekari undanþágur frá skyldu til að byggja færslu aflamarks milli skipa á viðskiptum á Kvótaþingi. Gerir hann fyrirvara um þetta atriði.
    Í nefndinni kom fram sú skoðun að lagfæra þurfi þau ákvæði frumvarpsins sem varða framkvæmd viðskipta á Kvótaþinginu þannig að þau verði þjálli og jafnframt verði gætt fyllsta öryggis. Í því efni telur 1. minni hluti nauðsynlegt að á næstu mánuðum við undirbúning að framkvæmd laganna verði ákvæði þeirra grandskoðuð með tilliti til þessa.
    Fyrsti minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er tillaga um í sérstöku þingskjali. Í breytingunum felst:
1.      Lagt er til að viðurlagaákvæði 18. gr. verði breytt verulega. Ekki verður um að ræða þær refsingar sem frumvarpið gerir ráð fyrir heldur verði seljanda gefinn kostur á að afhenda hið selda. Jafnframt er opnað fyrir heimild til að útiloka slíkan seljanda frá frekari viðskipt um á Kvótaþinginu nema að fullnægðum tilteknum skilyrðum. Til slíkra útilokana yrði þó vart gripið nema brotið væri framið af ásetningi eða ef um ítrekuð brot væri að ræða þó ekki væri hægt að sýna fram á ásetning.
2.      Þá er lagt til að bætt verði við frumvarpið ákvæði til bráðabirgða sem leggur þá skyldu á sjávarútvegsráðherra að leggja fyrir Alþingi skýrslu fyrir árslok 1999 þar sem gerð er grein fyrir áhrifum þeirra breytinga sem frumvarpið felur í sér á íslenskan sjávarútveg, sérstak lega hvað varðar stöðu og möguleika einstaklingsútgerðar. Lagt er til að sambærilegu bráðabirgðaákvæði verði einnig bætt við frumvarp um Verðlagsstofu skiptaverðs og frumvarp um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum.
3.      Að síðustu er lagt til að bætt verði við frumvarpið ákvæði til bráðabirgða sem tryggi aðilum heimild til að flytja aflamark milli skipa innan sömu útgerðar ef um kaupleigu eða leigu er að ræða þrátt fyrir að ekki sé um að ræða sama eignaraðilann án þess að þurfa að fara í gegnum Kvótaþingið. Sams konar breyting er lögð til á frumvarpinu um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. Sá fyrirvari er þó á slíku að leigusamningur hafi verið gerður fyrir gildistöku laganna. 1. minni hluti telur að ákvæði frumvarpsins séu of þröng gagnvart fjár mögnunarformi eins og kaupleigu og ekki væri ástæða til að mismuna aðilum á grundvelli þess hvaða fjármögnunarleið þeir hafa kosið í rekstri sínum. Hins vegar munu leigu- og kaupleigusamningar gerðir eftir gildistöku laganna ekki falla undir þetta undanþágu ákvæði.

Alþingi, 27. mars 1998.



Árni R. Árnason,


varaform., frsm.


Guðmundur Hallvarðsson.



Hjálmar Árnason,


með fyrirvara.



Valgerður Sverrisdóttir.