Ferill 542. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1210 – 542. mál.



Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 34 17. júní 1944, um þjóðfána Íslendinga.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Kristján Andra Stefánsson frá for sætisráðuneyti. Þá bárust nefndinni umsagnir um málið frá Íslenskum sjóefnum og Ríkarði Pálssyni, auk þess sem stuðst var við umsagnir sem bárust um málið á 121. löggjafarþingi frá Ferðamálaráði, Samtökum iðnaðarins og biskupsstofu.
    Frumvarpið felur í sér nokkrar breytingar á lögum um þjóðfána Íslendinga. Helstu breyt ingar frumvarpsins felast í því að gert er ráð fyrir að heimilað verði að nota fánann í vöru merki, á söluvarning og umbúðir og í auglýsingum á vörum eða þjónustu með sérstöku leyfi forsætisráðuneytisins, en þess skal gætt að viðkomandi starfsemi sé slík að gæðum að fánan um verði ekki gerð óvirðing. Nánari reglur um hvaða kröfur verði gerðar í því skyni verða settar með reglugerð. Leggur nefndin áherslu á að þær verði skýrar og samráð verði haft við Einkaleyfastofu um hvaða viðmiðanir verða nýttar í því sambandi. Áfram verður hins vegar óheimilt að nota fánann í firmamerki. Aðrar breytingar sem frumvarpið felur í sér lúta m.a. að því að lagt er til að ákvæði um fána hafnsögumanns verði felld niður. Þá er lagt til að merki forseta Íslands sé talið upp með öðrum merkjum sem lögin heimila að notuð séu í þjóð fánanum. Einnig er lagt til að ákvæði samkeppnislaga sem bannar að selja vörur af erlendum uppruna ef á umbúðir þeirra hefur verið sett mynd af íslenska fánanum verði fært í lög um þjóðfánann þar sem það þykir eiga betur heima.
    Í nefndinni komu fram þau sjónarmið að æskilegt væri að almenningur notaði fánann meira en raun ber vitni. Leggur nefndin áherslu á að forsætisráðuneytið beiti sér á ný fyrir útgáfu handbókar um meðferð og notkun fánans og geri reglur þar um aðgengilegar almenn ingi.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem lagðar eru til í sérstöku þingskjali. Helstu efnisatriði breytinganna eru eftirfarandi:
     1.      Í fyrsta lagi er lagt til að fellt verði brott ákvæði 3. mgr. 12. gr. laganna þess efnis að einstökum stjórnmálaflokkum sé óheimilt að nota þjóðfána í áróðursskyni við kosninga-undirbúning eða kosningar. Þykir takmörkun í lögum af þessu tagi sem aðeins nær til stjórnmálaflokka óeðlileg. Í lögskýringargögnum er ekki að finna skýringar á því að hvaða markmiði var stefnt með bannákvæðinu, en hafi ákvæðinu verið stefnt gegn því að einhver stjórnmálaflokkur reyndi að helga sér þjóðfánann umfram aðra flokka eða gerði hann að auðkenni sínu í auglýsingum virðist því markmiði þegar vera náð með banni 2. mgr. 12. gr. þar sem kveðið er á um að félögum sé óheimilt að nota þjóðfánann sem sitt einka- eða auðkennismerki.
     2.      Í öðru lagi er lagt til að bætt verði við lögin nýju ákvæði þar sem kveðið er á um að skjaldarmerki Íslands sé auðkenni stjórnvalda ríkisins og að notkun þess sé þeim einum heimil. Lagt er til að ákvæði þessu verði bætt við lögin í stað þess að setja sérstök lög um skjaldarmerki Íslands þar sem slíkt er mun einfaldara og viðaminna í framkvæmd. Af þessari breytingu leiðir að gera verður til samræmingar breytingu á 2. mgr. 29. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993, sbr. breytingartillögu nefndarinnar við 11. gr. frumvarps ins. Þá er í tengslum við þessa breytingu lagt til að heiti laganna verði lög um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.
     3.      Einnig er lögð til orðalagsbreyting á reglugerðarheimild í 13. gr. laganna.
     4.      Þá er lögð til breyting á 14. gr. laganna þess efnis að orðið varðhald verði fellt brott úr greininni til samræmis við frumvarp dómsmálaráðherra sem liggur fyrir þinginu um af nám varðhaldsrefsingar.
     5.      Loks er lagt til að gerð verði breyting á ákvæði 1. mgr. 32. gr. laga um vörumerki, nr. 45/1997, en þar eru tæmandi talin skilyrði þess að vörumerki verði afmáð úr vöru merkjaskrá. Leggur nefndin til að ákvæði þess efnis að ef skrásett hefur verið af misgán ingi vörumerki þar sem notaður er þjóðfáni án heimildar forsætisráðuneytis skuli það afmáð úr vörumerkjaskrá að kröfu forsætisráðuneytis.
    Hjálmar Jónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 18. apríl 1998.



Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Valgerður Sverrisdóttir.



Jóhanna Sigurðardóttir.




Árni R. Árnason.



Bryndís Hlöðversdóttir.



Jón Kristjánsson.



Kristján Pálsson.



Guðný Guðbjörnsdóttir.