Ferill 522. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1254 – 522. mál.



Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á almennum hegningarlögum, nr. 19 12. febrúar 1940, með síðari breytingum, og um breytingar á öðrum lögum (afnám varðhaldsrefsingar).

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Benedikt Bogason frá dómsmála ráðuneyti og Hallgrím Ásgeirsson lögfræðing. Þá hafa nefndinni borist umsagnir um málið frá ríkissaksóknara, Fangelsismálastofnun ríkisins, Lögmannafélagi Íslands, lögreglustjóran um í Reykjavík og Sýslumannafélagi Íslands.
    Í frumvarpinu er lagt til að varðhald verði fellt niður sem refsing fyrir afbrot, en einnig eru lagðar til ýmsar minni háttar lagfæringar á lagaákvæðum um refsingar. Samkvæmt nú gildandi ákvæðum almennra hegningarlaga má dæma menn í fangelsi ævilangt eða um tiltek inn tíma, ekki skemur en 30 daga og ekki lengur en 16 ár. Í varðhald má hins vegar dæma menn í tiltekinn tíma, sem er ekki skemmri en fimm dagar og ekki lengri en tvö ár, nema ann að sé ákveðið í lögum. Auk mismunandi tímalengdar gerðu hegningarlög allt til ársins 1988 ráð fyrir nokkrum mun á inntaki þessara tveggja tegunda refsivistar. Varðhaldsvist átti að jafnaði að taka út í einrúmi, en meginreglan um fangelsisvist var sú að hana skyldi afplána í félagi við aðra fanga. Varðhaldsfangar þurftu ekki að láta sér nægja venjulegt fangaviður væri og máttu þeir einnig útvega sér vinnu. Þannig taldist varðhaldsvist mildari tegund refsi vistar en fangelsi. Aldrei kom þó til þess í framkvæmd að refsivist væri fullnustuð í samræmi við þessi ákvæði og árið 1988 var lögfest sama réttarstaða fyrir varðhaldsfanga og þá sem afplána fangelsisrefsingu, enda samræmist slík regla nútímaviðhorfum. Sú tillaga frumvarps ins að varðhald verði afnumið sem viðurlög við refsiverðri háttsemi er því afleiðing laga breytinga og breyttra viðhorfa og hefur í raun ekki í för með sér neina breytingu á því hvern ig fullnusta refsidóma fer fram.
    Nefndin mælir með samþykkt frumvarpsins með nokkrum breytingum sem gerð er grein fyrir í sérstöku þingskjali, en breytingarnar eru nauðsynlegar vegna lagabreytinga sem gerð ar hafa verið eftir að frumvarpið var lagt fram. Breytingarnar eru eftirfarandi:
     1.      Lagt er til að 151. gr. frumvarpsins falli brott. Um er að ræða ákvæði í lögum um þjóðfána Íslendinga, sem allsherjarnefnd hefur haft til umfjöllunar og hefur nefndin lagt til að umrædd breyting verði gerð á lögunum í tengslum við aðrar breytingar sem lagðar eru til á þeim lögum.
     2.      Í öðru lagi er lagt til að 152. gr. frumvarpsins falli brott þar sem til stendur að umrædd lög, lög um stjórn flugmála, nr. 119/1950, verði felld brott með nýjum loftferðalögum, sem nú eru til lokaafgreiðslu á Alþingi.
     3.      Þá er lagt til að 162. gr. frumvarpsins verði felld brott. Í ákvæðinu eru lagðar til breytingar á lögum um loftferðir, nr. 34/1964, en í frumvarpi til nýrra loftferðalaga sem nú er til lokaafgreiðslu á Alþingi er lagt til að eldri lög verði felld úr gildi.
     4.      Lagt er til að 169. gr. frumvarpsins falli brott, en þar er kveðið á um breytingu á lögum um Hæstarétt Íslands, nr. 75/1973, sem Alþingi hefur samþykkt að verði felld úr gildi við gildistöku dómstólalaga.
     5.      Lagt er til að 174. gr. frumvarpsins falli brott þar sem samþykkt hefur verið að fella lög um skotvopn, sprengiefni og skotelda, nr. 46/1977, úr gildi við gildistöku vopnalaga. Því er lagt til að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á vopnalögum og ákvæði um varðhald felld þar út.
     6.      Þá er lagt til að 200. gr. falli brott, en lög um hollustuhætti og heilbrigðiseftirlit, nr. 81/1988, voru felld úr gildi við gildistöku laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
     7.      Einnig er lögð til breyting á lögum um kosningar til sveitarstjórna, nr. 5/1998, þannig að ákvæði um varðhald verði felld brott og aðeins kveðið á um fangelsisrefsingu í lög unum.
     8.      Þá er lögð til breyting á 1. málsl. 2. mgr. 24. gr. laga um verslunaratvinnu, nr. 28/1998, þannig að í stað þess að kveðið verði á um varðhaldi sem viðurlög verði kveðið á um fangelsi allt að tveimur árum.
    Hjálmar Jónsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 21. apríl 1998.



Sólveig Pétursdóttir,


form., frsm.


Valgerður Sverrisdóttir.



Jóhanna Sigurðardóttir.




Árni R. Árnason.



Jón Kristjánsson.



Bryndís Hlöðversdóttir.



Guðný Guðbjörnsdóttir.



Kristján Pálsson.