Ferill 347. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.




122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1468 – 347. mál.



Breytingartillögur



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 97/1987, um vörugjald, með síðari breytingum.

Frá efnahags- og viðskiptanefnd.



     1.      Við 5. gr. Við bætist tveir nýir stafliðir, svohljóðandi:
           c.      Eftirfarandi tollskrárnúmer fellur brott úr C-lið viðaukans: 8507.8000.
           d.      Eftirfarandi tollskrárnúmer bætast við C-lið viðaukans: 8507.8091 og 8507.8099.
     2.      Við 6. gr. Í stað orðanna „1. júní 1998“ komi: 1. júlí 1998.
     3.      Við ákvæði til bráðabirgða. 2. mgr. orðist svo:
                  Þrátt fyrir ákvæði laganna skal júnímánuður 1998 vera eitt uppgjörstímabil. Gjald dagi vegna þess uppgjörstímabils skal vera 15. september 1998. Um álagningu og aðra framkvæmd vörugjalds vegna þess uppgjörstímabils skal fara eftir ákvæðum laganna eins og þau voru fyrir gildistöku laga þessara.