Ferill 57. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
122. löggjafarþing 1997–98.
Þskj. 1483 – 57. mál.
Frumvarp til laga
um lögmenn.
(Eftir 2. umr., 2. júní.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Lögmenn eru opinberir sýslunarmenn. Njóta þeir réttinda og bera skyldur samkvæmt því.
2. gr.
Ákvæði 1. mgr. gilda um opinber mál með þeim takmörkunum sem kann að leiða af heim
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. getur málsaðili falið þeim sem starfar sem lögmaður í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu og hefur heimild til að fara þar með mál annarra fyrir dómstóli að gæta hagsmuna sinna í máli fyrir samsvarandi dómstóli hér á landi, enda njóti hann í þing
II. KAFLI
Lögmannafélag Íslands og úrskurðarnefnd lögmanna.
3. gr.
Lögmannafélag Íslands setur sér samþykktir. Það skal ekki hafa með höndum aðra starf
Í tengslum við Lögmannafélag Íslands skal starfa úrskurðarnefnd lögmanna sem leysir úr málum eftir ákvæðum þessara laga. Skal hún skipuð fimm mönnum og jafnmörgum til vara. Skal hver nefndarmaður eiga þar sæti í fimm ár í senn, en þó þannig að sæti eins nefndarmanns losni árlega. Tveir nefndarmenn skulu kosnir af Lögmannafélagi Íslands sam
Lögmannafélag Íslands ber kostnað af þeim störfum sem því og úrskurðarnefnd lögmanna eru falin með lögum. Getur félagið lagt á félagsmenn árgjald til að standa straum af þeim kostnaði.
Lögmannafélagi Íslands er heimilt að starfrækja í öðru skyni en að framan greinir sér
4. gr.
Ákvarðanir úrskurðarnefndar lögmanna sæta hvorki stjórnsýslukæru né málskoti innan Lögmannafélags Íslands.
5. gr.
Lögmannafélag Íslands setur siðareglur fyrir lögmenn.
Lögmannafélag Íslands skal stuðla að því að sérhver sem þarfnast aðstoðar lögmanns fái notið hennar, enda hlíti hann þá ráðum lögmannsins og tryggi greiðslu hæfilegs endurgjalds fyrir aðstoðina.
III. KAFLI
Lögmannsréttindi.
6. gr.
1. er lögráða og svo á sig kominn andlega að hann sé fær um að gegna störfum lögmanns,
2. hefur aldrei orðið að sæta því að bú hans sé tekið til gjaldþrotaskipta,
3. hefur óflekkað mannorð, svo sem áskilið er til kjörgengis við kosningar til Alþingis,
4. hefur lokið embættisprófi í lögfræði við Háskóla Íslands,
5. stenst prófraun skv. 7. gr.
Víkja má frá skilyrði 2. tölul. 1. mgr. að fengnum meðmælum Lögmannafélags Íslands ef umsækjandi hefur haft forræði á fé sínu að minnsta kosti þrjú undanfarin ár.
Leggja má að jöfnu við próf það, sem um getur í 4. tölul. 1. mgr., sambærilegt próf frá öðrum háskóla ef prófnefnd skv. 1. mgr. 7. gr. telur sýnt að umsækjandi hafi næga þekkingu á íslenskum lögum. Til að staðreyna þetta er nefndinni heimilt að leggja fyrir umsækjanda að gangast undir sérstakt próf á sínum vegum í einni eða fleiri lögfræðigreinum.
Dómsmálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð fyrirmæli um undanþágu frá skilyrðum 5. tölul. 1. mgr. handa þeim sem hafa öðlast hliðstæð réttindi í öðru ríki.
7. gr.
Prófraunin skal bæði vera bókleg og verkleg og ná til þeirra greina bóknáms og verk
Efnt skal til námskeiðs og prófraunar ekki sjaldnar en annað hvert ár.
Að fenginni tillögu prófnefndar ákveður dómsmálaráðherra gjald sem umsækjendur greiða fyrir að þreyta prófraun. Skal fjárhæð þess taka mið af kostnaði af námskeiðum og annarri framkvæmd prófraunarinnar.
8. gr.
Dómsmálaráðherra gefur út leyfisbréf handa héraðsdómslögmanni.
Héraðsdómslögmaður má gæta hagsmuna aðila í máli fyrir héraðsdómi eða sérdómstóli.
9. gr.
1. hefur haft réttindi til að vera héraðsdómslögmaður í fimm ár,
2. fullnægir þeim kröfum sem er getið í 1.–3. tölul. 1. mgr. 6. gr.,
3. hefur flutt ekki færri en þrjátíu mál munnlega fyrir héraðsdómi eða sérdómstóli,
4. sýnir fram á það með prófraun, sem felst í flutningi tveggja mála fyrir Hæstarétti, að hann sé hæfur til að öðlast réttindin.
Sá sem þreyta vill prófraun skv. 4. tölul. 1. mgr. skal beina til sérstakrar prófnefndar um
Að fenginni umsögn Hæstaréttar getur ráðherra vikið frá skilyrðum 1., 3. og 4. tölul. 1. mgr. ef umsækjandi hefur gegnt dómaraembætti í að minnsta kosti tíu ár. Með sama hætti getur ráðherra vikið frá 1. og 4. tölul. 1. mgr. ef umsækjandi hefur um jafnlangan tíma gegnt embætti eða starfi sem fylgir lögum samkvæmt heimild til að flytja opinber mál fyrir Hæsta
Dómsmálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð fyrirmæli um undanþágu frá skilyrðum 1. og 3. tölul. 1. mgr. handa þeim sem hafa öðlast hliðstæð réttindi í öðru ríki og fullnægja að öðru leyti þeim kröfum sem eru gerðar í 1.–4. tölul. 1. mgr. 6. gr., sbr. 2. og 3. mgr. sömu greinar.
10. gr.
Dómsmálaráðherra gefur út leyfisbréf handa hæstaréttarlögmanni.
Hæstaréttarlögmaður má gæta hagsmuna aðila í málum fyrir öllum dómstólum landsins.
11. gr.
Að fenginni staðfestingu skv. 1. mgr. skal lögmaður tilkynna dómstólum um ráðningu full
Lögmaður getur ráðið annan lögmann til starfa hjá sér. Ber lögmaður ábyrgð á fjárvörslu slíks starfsmanns síns, svo og fébótaábyrgð á störfum hans að öðru leyti.
12. gr.
Lögmaður getur sótt um undanþágu til Lögmannafélags Íslands frá þeim skyldum sem um ræðir í 1. mgr. á meðan hann:
1. gegnir föstu starfi hjá opinberri stofnun eða einkaaðila, enda veiti hann engum öðrum þjónustu sem lögmaður,
2. starfar hjá öðrum lögmanni, sbr. 3. mgr. 11. gr., eða
3. gegnir föstu starfi hjá félagasamtökum enda veiti hann engum öðrum en þeim samtökum eða félagsmönnum þeirra þjónustu og skal þjónustan falla innan starfssviðs samtakanna.
Lögmaður sem leitar undanþágu skv. 2. mgr. skal leggja fram samþykki vinnuveitanda síns fyrir henni. Ef undanþágu er leitað skv. 1. eða 3. tölul. 2. mgr. skal lögmaður láta fylgja yfirlýsingu sína um að hann muni ekki hagnýta sér réttindi sín í ríkara mæli en þar greinir. Ef undanþágu er leitað skv. 2. tölul. 2. mgr. skal fylgja staðfesting um þá ábyrgð vinnuveit
Ef lögmaður fullnægir annars ekki þeim skyldum sem um getur í 1. mgr. ber honum að skila leyfisbréfi sínu og skulu réttindi hans felld niður.
13. gr.
Lögmanni er skylt að veita Lögmannafélagi Íslands eða löggiltum endurskoðanda, sem félagið tilnefnir í því skyni, allar nauðsynlegar upplýsingar til að metið verði hvort hann full
Komi fram við eftirlit skv. 1. mgr. að lögmaður fullnægi ekki þeim skilyrðum sem þar greinir ber Lögmannafélagi Íslands að leggja til við dómsmálaráðherra að réttindi hans verði felld úr gildi. Skal ráðherra taka rökstudda afstöðu til slíkrar tillögu innan tveggja mánaða frá því að hún berst honum.
Ef réttindi lögmanns eru felld niður með þeim hætti sem í 3. mgr. segir er honum heimilt að höfða einkamál eftir almennum reglum gegn ríkinu til ógildingar á ákvörðun ráðherra.
14. gr.
Ráðherra ber að taka afstöðu til tillögu skv. 1. mgr. innan tveggja mánaða frá því hún berst honum.
Felli ráðherra niður réttindi lögmanns samkvæmt framansögðu getur lögmaðurinn höfðað mál um þá ákvörðun með sama hætti og segir í 4. mgr. 13. gr.
15. gr.
Lögmanni er alltaf frjálst að afsala sér réttindum sínum.
16. gr.
Hafi réttindi lögmanns verið felld niður ótímabundið samkvæmt því sem í 14. gr. segir getur hann að fimm árum liðnum sótt um heimild til að gangast undir prófraun skv. 7. gr. og sækja í kjölfarið á ný um réttindi til að vera héraðsdómslögmaður. Slíka heimild veitir dóms
17. gr.
Í dómsmálaráðuneytinu skal halda skrá um þá sem hafa lögmannsréttindi. Skal þar gerð um það sérstök athugasemd ef lögmaður hefur hlotið undanþágu með þeim hætti sem greinir í 1. tölul. 2. mgr. 12. gr. Skrá þessi skal vera opin almenningi.
IV. KAFLI
Störf lögmanna.
18. gr.
19. gr.
Telji lögmaður sér ekki fært vegna aldurs eða heilsufars síns að hafa opna skrifstofu má hann leita undanþágu Lögmannafélags Íslands frá skyldu til þess.
Lögmönnum er heimilt að stofna félag um rekstur sinn í því formi sem þeir sjálfir kjósa, þar á meðal með takmarkaðri ábyrgð. Slík takmörkun breytir ekki því að lögmaður ber alltaf óskerta ábyrgð á tjóni sem hann eða starfsmaður hans bakar öðrum með störfum sínum.
Öðrum en lögmönnum er óheimilt að reka félag um skrifstofu lögmanns eða eiga hlut í því. Við andlát lögmanns getur þó Lögmannafélag Íslands veitt dánarbúi hans eða erfingjum tímabundna heimild til að eiga og reka slíkt félag. Sams konar heimild má veita þrotabúi ef bú lögmanns er tekið til gjaldþrotaskipta.
Ráðherra getur heimilað, að fenginni umsögn Lögmannafélags Íslands, að aðrir en þeir sem nefndir eru í 4. mgr. geti átt eða rekið félag um skrifstofu lögmanns svo fremi að sérstak
20. gr.
Að öðru leyti en leiðir af 1. mgr. er lögmanni aldrei skylt að taka að sér verk sem leitað er til hans um.
21. gr.
Sé ekki sýnt fram á annað felur umboð aðila til lögmanns í sér heimild til að gera hvað
Lögmaður getur ekki tekið við greiðslu svo bindandi sé gagnvart umbjóðanda nema hann hafi til þess sannanlegt umboð.
Lögmanni er skylt að inna sjálfur af hendi þau störf fyrir dómi sem honum eru falin nema umbjóðandi hans samþykki annað. Lögmaður getur þó falið fulltrúa sínum eða öðrum lög
Umbjóðanda er ætíð heimilt að kalla aftur umboð sitt til lögmanns. Ákvæði um annað í umboði eru ekki skuldbindandi.
Lögmaður getur á öllum stigum sagt sig frá verki sem honum hefur verið falið, en gæta verður hann þess að umbjóðandi hans verði ekki af þeim sökum fyrir réttarspjöllum.
22. gr.
Áður en lögmaður tekur að sér verk ber honum að vekja athygli þess sem til hans leitar ef hann telur einhverja hættu á að hagsmunirnir sem í húfi eru kunni að rekast á hagsmuni hans sjálfs, venslamanna sinna eða annars umbjóðanda, eða að samsvarandi tormerki geti risið við rækslu starfans.
23. gr.
Dómsmálaráðherra skal setja nánari reglur um vörslufjárreikninga að fengnum tillögum Lögmannafélags Íslands.
24. gr.
Loforð um ósanngjarnt endurgjald fyrir starf lögmanns bindur ekki umbjóðanda hans.
Dómsmálaráðherra getur að fenginni umsögn Lögmannafélags Íslands gefið út leiðbein
25. gr.
Lögmönnum er skylt að hafa í gildi ábyrgðartryggingu hjá vátryggingafélagi sem hefur starfsleyfi hér á landi vegna fjárhagstjóns sem leitt getur af gáleysi í störfum þeirra eða starfsmanna þeirra. Að fengnum tillögum Lögmannafélags Íslands getur dómsmálaráðherra ákveðið með reglugerð að önnur jafngild trygging geti komið í stað ábyrgðartryggingar.
Dómsmálaráðherra skal að fengnum tillögum Lögmannafélags Íslands og umsögn Fjár
Lögmanni er heimilt með samningi um ákveðið verk að takmarka hámark bótaskyldu sinn
V. KAFLI
Ágreiningur um störf lögmanna.
26. gr.
Hafi dómsmál ekki verið höfðað um ágreiningsefni skv. 1. mgr. áður en það er lagt fyrir úrskurðarnefndina verður það ekki borið undir dómstóla á meðan málið er þar rekið.
Ef lagt er fyrir úrskurðarnefndina ágreiningsefni sem dómsmál er rekið um getur hún að ósk annars eða beggja aðila látið í té álitsgerð til afnota þar. Hafi dómsmáli verið lokið um ágreiningsefnið vísar nefndin því frá sér.
27. gr.
Í máli skv. 1. mgr. getur úrskurðarnefndin fundið að vinnubrögðum eða háttsemi lög
28. gr.
Úrskurðarnefndinni er heimilt ef sérstaklega stendur á að skylda málsaðila til að greiða gagnaðila sínum málskostnað vegna rekstrar máls fyrir henni.
Þegar máli skv. 26. eða 27. gr. er lokið fyrir úrskurðarnefndinni er aðila að því heimilt að leita fyrir dómi ógildingar á úrskurði hennar eða sátt sem er gerð fyrir henni eða leita þannig breytingar á niðurstöðu sem þar hefur fengist.
Úrskurði nefndarinnar eða sátt sem kemst á fyrir henni má fullnægja með aðför eins og dómsúrskurði eða dómsátt.
VI. KAFLI
Ýmis ákvæði.
29. gr.
Þeim einum er heimilt að nota starfsheitið lögmaður, héraðsdómslögmaður eða hæsta
Brot gegn 1. mgr. 22. gr., 1. mgr. 23. gr. og 2. mgr. 25. gr. varða sektum nema þyngri refs
VII. KAFLI
Gildistaka o.fl.
30. gr.
31. gr.
Hafi maður fyrir gildistöku laga þessara byrjað að þreyta prófraun til að afla sér réttinda sem héraðsdómslögmaður eða hæstaréttarlögmaður en ekki lokið henni skal hann eiga kost á að ljúka henni eftir eldri reglum fyrir 1. júlí 2000. Fer þá um skilyrði til að veita réttindin eftir ákvæðum 1. mgr. 9. gr. og 1. mgr. 14. gr. eldri laga.
Hafi lögmaður verið sviptur réttindum eða lagt þau inn fyrir 1. janúar 1999 eða svo hefur annars orðið ástatt fyrir honum að hann hafi fyrirgert réttindum sínum um sinn gilda ákvæði þessara laga um hvort, hvernig og hvenær hann geti öðlast réttindin á ný.
Lögmenn, sem telja sig við gildistöku laga þessara fullnægja skilyrðum 2. mgr. 12. gr. til að njóta þargreindrar undanþágu, hafa frest til 1. apríl 1999 til að leita eftir henni.
Þeim sem við gildistöku laga þessara fullnægja skilyrðum 14. gr. laga um málflytjendur til að öðlast leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi án þess að þreyta prófraun, sbr. 3. mgr. þeirrar greinar, öðrum en skilyrði um 30 ára aldur, má veita slík málflutningsréttindi þegar í stað, enda sé sótt um þau fyrir 1. apríl 1999.
Nú er svo ástatt um einhvern sem greinir í 5. mgr., og hann fullnægir heldur ekki kröfu um starfsreynslu en hefur þó í 6 mánuði að lágmarki verið alþingismaður, gegnt málflutningsstörfum að staðaldri eða gegnt lögfræðistörfum að aðalstarfi í þágu ríkis eða sveitarfélaga, og má þá veita honum slík réttindi þegar skilyrði eldri laga um starfsreynslu er fullnægt, enda sé sótt um þau innan þriggja mánaða frá því tímamarki og aldrei síðar en 1. apríl 2002.
Ákvæði til bráðabirgða.
Þegar skipað er í fyrsta sinn í úrskurðarnefnd lögmanna skal einn aðalmaður ásamt vara