Framhaldsfundir Alþingis

Miðvikudaginn 06. janúar 1999, kl. 13:33:32 (2914)

1999-01-06 13:33:32# 123. lþ. 50.91 fundur 192#B framhaldsfundir Alþingis#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 123. lþ.

[13:33]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda miðvikudaginn 6. janúar 1999 kl. 13.30.

Gjört á Bessastöðum, 31. desember 1998.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.``

Framhaldsfundir Alþingis hefjast því nú á ný. Hæstv. forseta, hv. alþingismönnum, svo og starfsmönnum Alþingis óska ég gleðilegs árs og þakka hið liðna. Ég býð þá velkomna til þingstarfa og læt í ljós þá ósk og von að störf okkar megi verða landi og lýð til blessunar.