Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir svarið og ég las það milli orða hans, ég leyfi mér að túlka þau svo, að nefndin kunni að hafa vilja til að ræða um möguleika milli umræðna, t.d. milli 2. og 3. umr., til að finna leiðir til að bregðast við neyðarástandi sem þegar er skollið á og getur borið við fyrr en varir á þessu yfirstandandi fiskveiðiári. Ég inni hv. formann nefndarinnar eftir því hvort hann sé ekki reiðubúinn til að skoða það sérstaklega, og ég spurði að því við hvað væri miðað þegar Byggðastofnun fær 1.500 þorskígildistonn. Ég fékk ekki skýrt svar við því. Ég geri mér auðvitað ljóst að margháttaður vandi tengist úthlutun af þessum toga en sá vandi er samt smáræði hjá þeirri neyð sem við blasir í sjávarplássum sem verða fyrir verstu agnúunum af gildandi kerfi með því að stoðum er gersamlega kippt undan lífsbjörg fólks. Ég undrast það í rauninni meðan þetta kerfi blasir við að ekki sé almennur stuðningur við það að slíkur neyðarpottur sé til ráðstöfunar í sambandi við slík tilvik. Ég mun a.m.k. styðja það atriði en það þýðir ekki um leið að maður sé að styðja þetta kerfi sem slíkt með því framsali sem því fylgir en það er staðreynd eins og er og meðan ekki eru fundnar leiðir og ekki er pólitískt afl til að breyta því með öðrum hætti verða menn að hafa þennan möguleika.