Stjórn fiskveiða

Mánudaginn 11. janúar 1999, kl. 16:04:28 (2971)

1999-01-11 16:04:28# 123. lþ. 52.1 fundur 343. mál: #A stjórn fiskveiða# (veiðileyfi o.fl.) frv. 1/1999, ÁRÁ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 123. lþ.

[16:04]

Árni R. Árnason (andsvar):

Herra forseti. Það er ánægjulegt að heyra að hv. þm. telur álit lögmanna og fræðimanna í lögum, sem við höfum fengið, ekki nægilega vel hugsuð eða skýr. Ég verð hins vegar að viðurkenna að fyrir mér er þessi skoðun þingmannsins pólitísk afstaða til þess sem fyrir liggur og getur varla talist eðlilegur mælikvarði á skilning og túlkun fræðimanna eða annarra stjórnmálamanna sem hér eru að störfum. Ég tel einfaldlega ljóst að þetta sé efnislegt atriði en ekki lagalegt, eins og hv. þm. vill halda fram.