Frsm. minni hluta sjútvn. (Svanfríður Jónasdóttir) (andsvar):
Herra forseti. Ég hjó eftir því að hv. þm. ætlar að halda því til haga hvaða skoðanir og álitaefni ég hef sett fram varðandi Byggðastofnunarkvótann. Ég vil þá spyrja þingmanninn: Finnst þingmanninum sú aðferð að búa þennan pott til á milli umræðna sé rétta aðferðin til þess að vinna að leiðum svo hægt sé að mæta þeim aðstæðum sem geta komið upp víða úti á landi og jafnvel í Reykjavík og jafnvel annars staðar þar sem atvinnuörðugleikar skapast vegna breytinga í umhverfinu? Þessi hugmynd fer aldrei út til umsagnar, hún er lítt útfærð en hefur þó aðeins tekið breytingum vegna gagnrýni stjórnarandstöðunnar. Er hugmyndin sú að finna upp aðferð --- bingó!--- á milli umræðna í þinginu þar sem menn vinna undir tímapressu og ekki gefst tími til útfærslna né heldur til þess að skrifa nákvæmlega út hvernig menn ætla að mæta þeirri reglu eða þeirri kröfu sem menn gerðu um jafnræði að, ég tala ekki um þeirri samkeppnisstöðu, sem ég held að við séum sammála um að verði að ríkja á milli fyrirtækja í landinu.